Réttar sögur… röng fyrirsögn…

Almennt 1 Comment

Holtsrétt í Fljótum var haldin nú í miðjum mánuðinum. Ég skellti mér og gekk fyrir Molastaðahjónin, Dóra og Mæju. Á föstudeginum var réttað fremst í austur-Fljótunum, Lágheiðin og tveir dalir sem liggja niður að Stíflu, Hvarfdalur og Móafellsdalur. Mitt hlutverk var að vera annar efsti maður og ganga upp í Klaufnabrekknadal (eða Klaufann eins og gárungarnir kalla dalinn og er nafn við hæfi þegar ég er annars vegar) og yfir í Hvarfdal en reka síðan skjáturnar í Stífluréttina svokölluðu. Þetta var löng ganga og ekki bætti úr að það var kominn heilmikill snjór svo að í verstu sköflunum sökk maður alveg niður á mitti. Enda tók gangan mikið á og þegar í réttina var komið kvörtuðu vöðvanir mínir sáran svo ég engdist af sinadrátt út um allan líkamann.


Mynd1: Brosandi rolla í Holtsrétt. Lambið rétt hægra megin við í réttinni verður réttbráðum að einhverjum góðum rétti … ekki rétt?

Það var því ekki gæfulegur Tryggvi sem vaknaði á laugardagsmorguninn til þess að ganga frá Stífluréttinni og út með Hólafjallinu norður í Holtsréttina. Var þó neðsti maður í þetta skiptið svo gangan var öllu auðveldari. Þegar réttin var kominn í augsýn voru pelarnir teknir upp og sopið á og þá má segja að vöðvaeimsl dagsins á undan hafi horfið eins og dögg fyrir sólu.

Molastaðabúið á einhverjar 800 kindur svo það var mikið verk að draga í dilkinn þeirra. Að draga í dilka krefst heilmikillar lagni og jafnvel krafta þegar erfiðustu rollurnar eiga í hlut. Rollurnar hans Dóra eru ennfremur nær allar kollóttar þannig að það dugði bara hálstakið á þær.

Horft í áttina að Móafellsdal
Mynd2: Horft inn í Móafellsdalinn. Bærinn Deplar er í forgrunni.

Nú segir sögunni að viðskipunum mínum þarna í réttunum. Eftir nokkra sopa af viskuvatni svokölluðu fór heilabúið að starfa svolítið skringilega og fyrr en varir var ég búinn að handsala kaup við Dóra og Mæju á tveim lömbum sem þau ætla að ala upp fyrir mér nú í vetur. Enda hálf tilgangslaust að ganga svona fram af sér í réttum ef maður hefur engan hag af því sjálfur.

Lömbin tvö, mórautt og bíldótt og vonandi bæði tvílemd í vor, munu verða merkt með mínu eigin marki - gamla markinu hans afa Guðmundar - ef ég man rétt hægra stíft og bit framan - vinstra sílt og bit aftan. Maður er auðvitað kexruglaður - en mikið verður samt gaman næsta haust að bjóða fólki í mat - frá manns eigin framleiðslu :)

Hafliði á Helgustöðum
Mynd3: Ég ásamt Hafliða á Helgustöðum, sem er stórmerkilega líkur frænda sínum, nafna og siglfirska vini mínum Halla Hödda.

Já og meðan ég man búinn að uppfæra myndasíðuna!

IKEA er drasl!

Óflokkað 4 Comments

Fór í IKEA í gær og verslaði mér eldhúsborð. Búandi á Akureyri þurfti ég að drösla borðinu, heil 32. kg, norður með mér í flugi. Ferðalagið frá IKEA og út á flugvöll með borðið góða í baksæti pínkulítillar Hyundai var heldur engin skemmtiferð. Allaveganna þegar ég var búinn að drösla borðinu upp á 3. hæð og ætla að fara að setja það saman sé ég að það vantar allar skrúfur og festingar í pakkann!

Í dag er ég svo búinn að reyna hringja 2x til þess að laga málin. Fyrst beið ég í símanum í 10 mínútur áður en ég gafst upp á biðinni. Í seinna tilvikinu entist ég 15 mínútur og náði þá loks sambandi við þjónustufulltrúa. Meðan ég beið þurfti ég að hlusta á síendurtekna síma mónótóníska útgáfu af einhverri Beethoven laglínu - var að gera mig brjálaðan og var því ekki í allt of góðu skapi þegar ég loksins gat borið erindi mitt upp við þjónustufulltrúann.

Eeeen auðvitað var ég ekki með nótuna við hliðinn á mér þar sem ég hringdi úr vinnunni og þjónustufulltrúinn harðneitaði að afgreiða fyrirspurn mína án hennar - sagði mér að finna hana fyrst og hringja svo aftur! Það er eins og maður hafi ekkert annað við tímann að gera en að standa í svona málum við IKEA. Ég sagði auðvitað að það kæmi ekki til greina að ég myndi hringja aftur og hálfpartinn hvæssti af gremju :) Grey stelpan þorði ekki öðru en að fara á sveig við reglurnar í þetta sinn og ætlar víst að senda mér dótið á morgun - en þrátt fyrir það þá líður örugglega langt þangað til ég fer í IKEA að versla mér húsgögn. Þoli ekki svona vesen og ósveigjanleika.

Það er allt orðið svo tæknilegt að maður getur ekki verslað neitt nema gefa upp kennitölu - og starfsfólk þarf ekki lengur að vita neitt um vörurnar eða kúnnana því þær upplýsingar eru allar geymdar í einhverju ómanneskjulegu tölvukerfi. Tæknin er svo sem ágæt en mér finnst að við þurfum samt passa okkur stundum að láta hana ekki ná svo miklum tökum á okkur að við gleymum mannlega þáttinum.

Myndir frá brúðkaupinu

Almennt 1 Comment

IMG_8704Setti inn myndir frá búðkaupinu inn á myndasíðuna mína. Þarf reyndar að vinna meira í öllum þeim aragrúa mynda sem ég er búinn að taka á ferðalögum mínum í júlí-ágúst, aldrei að vita nema ég komist í það síðar í þessari viku;)

Flandur og brúðkaup

Almennt No Comments

Nú er ein skemmtilegasta helgi þessa árs á enda runnin. Hún byrjaði á því að við fórum nokkrir vinirnir á pöbbarölt á Akureyri í viðleitni okkar til að leysa lífsgátuna. Við vorum ekki langt frá því held ég - en hvað svarið var er eiginlega búið að skolast svolítið til hjá mér - og öll þessi hugsun olli vitaskuld skelfilegum höfuðverk á laugardeginum.

Laugardagurinn var stór dagur hjá mér því þá ferðaðist ég til Egilsstaða í brúðkaup til Halla og Ingu. Þó það hafi verið svolítið erfitt að koma sér af stað um morguninn þá gekk ferðinn austur vel og brúðkaupið var hreint út stórkostlega skemmtilegt. Allaveganna var maður ekki kominn til hvílu fyrr en undir morgun, raddlaus og svitastrokinn eftir látlaustar söng- og dansæfingarnar í félagsheimilinu í Skriðdal.

Set inn nokkrar ritskoðaðar myndir frá því og steggjun brúðgumans við fyrsta tækifæri.

Sumarfrí

Almennt 1 Comment

Það er ekki mikið búið að skrifast á heimasíðuna mína síðustu daga og vikur. Enda hefur maður verið mun iðnari að anda að sér sumrinu en að hanga yfir tölvu að skrifa einhverjar fréttir af sjálfum sér.Ég er búinn að taka eina viku í frí sem ég eyddi norður/vestur í Fljótunum. Þar var rennt fyrir fisk, spilað á spil og tekið á móti gestum. Á þessum tíma sem ég dvaldi á Minni-Grindli komu bæði Árni og Garðar félagar mínir í heimsókn ásamt fjölskyldum. Jafnframt hélt ég í samvinnu við Sjöfn frænku mína örlítið teiti fyrir nágrannana í sveitinni sem mæltist að ég held bara ágætlega fyrir.

Svo hefur maður verið á fullu að spila fyrir Dalvík/Reyni í fótbolta og það verður eiginlega að segjast að maður er kominn af léttasta skeiðinu. Eilíf meiðslavandamál hafa verið að hrjá mig í allt sumar, hef þurft að binda á mér báða ökklana fyrir hverja einustu æfingu, reif vöðva í kálfa fyrr í vor og liðband við litla putta hægri handar eru eitthvað krambúleraðar. Frammistaðan hefur verið á svipaðan hátt, maður hefur aldrei náð að lyfta sér almennilega upp yfir meðalmennskuna og liðið siglir nú lygnan sjó um miðjan D-riðil 3. deildar - ekki á leiðinni upp í 2. deild að sinni. Bara að við hefðum spilað Íslandsmótið eins og við spiluðum þá 4 bikarleiki sem við spiluðum í sumar. Þá stæðum við mun betur að vígi.

Framhaldið hjá mér er líklega það að hætta öllu þessu fótbolta stússi. Þetta tekur allt of mikinn tíma frá manni sem og það er óþolandi að vera alltaf ein hækja. Maður veit þó aldrei hvað maður gerir næsta vor…

Í næstu viku mun ég taka mér sumarfrí og fara á einhvern flæking. Veit ekki hvert ferðinni er heitið nema ég ætla mér að vera austur í Vöðlavík um miðja vikuna að samfagna föður mínum sem verður sextugur 9. ágúst. Hann er 30 árum og tæpum einum mánuði eldri en ég svo ég hef nokkrar vikur til þess að grínast með að hann sé kominn á sjötugs aldurinn - en svo held ég að það sé bara hollara fyrir mig að halda KJ. :)

Nýjar myndir eru loksins komnar á myndasíðuna!!! Þar má meðal annars sjá myndir frá tónleikunum á Borgarfirði-eystri um síðustu helgi sem ég fór á ásamt Garðari, Halla og Ingu. Á leiðinni heim stoppaði ég við sæluhúsið við Jökulsá. Þar er talið vera svo reimt að það komst meira að segja í heimsmetabók Guinnes fyrir draugagang 1986 (ef ég hef kunnað einhverja bók utanaf þá er það þessi bók!). Á nat.is segir svo frá:

Allt fram til ársins 1947, þegar Jökulsá á Fjöllum var brúuð á Mývatnsöræfum, var lögferja frá Grímsstöðum aðeins norðar en brúin var reist. Þar var hlaðið sæluhús úr steinlímdu grjóti árið 1881. Í kjallaranum var hesthús og svefnloft fyrir ofan, þar sem var einnig eldstæði. Óhætt er að fullyrða, að fæst sæluhúsa á landinu á þessum tíma hafi verið eins vel búin.

Hvað, sem því líður, varð ekki öllum svefnsamt þar. Húsið varð alræmt vegna draugagangs. Gestir þess heyrðu högg og hávaða, þeim fannst þreifað á sér og hundar létu illa. Stundum virtist einhver vera rífa þakið af húsinu. Þeir, sem vissu lengra en nef þeirra náði, þóttust kenna ógulega ófreskju. Einn þeirra, Jóhannes Jónsson (Drauma-Jói), lýsti henni sem kafloðnum og ægilegum veturgömlum kálfi. Þetta hús stendur enn þá og bíður eftir gestum!

Sæluhúsið við Jökulsá

Færeyjaferð - myndir

Almennt 3 Comments

Sælt veri fólkið. Loksins hafði ég mig í að setja myndirnar frá Færeyjum inn á myndasíðuna. Biðst afsökunar hversu margar þær eru en svona er þetta barasta… ég er allt of myndaglaður. Ætla að reyna að komast í það næstu daga að skrifa texta við hverja og eina mynd. Það er margt að segja frá um margar myndirnar og best að gera það sem fyrst svo ég gleymi þessu ekki!

IMG_7145Annars er allt gott að frétta. Bissý tími framundan, verð á þönum næstu 4 helgar. Fyrst 3 brúðkaup og svo gönguferð frá Fljótunum yfir í Hóla í Hjaltadal. Síðan verður ein vika pása, en svo ætla ég að ganga frá Kaldakinn (já Kaldakinn heitir árans kinnin nefnd eftir vindinum ekki hitastiginu!) með Ferðafélagi Akureyrar og yfir í Náttfaravíkur. Systir mín er búinn að gefa mér MSNlegt loforð um að koma með, verður hrikalega gaman. Svo er það sextugs afmælið hans pabba í byrjun ágúst, en þá stefni ég á að ganga frá Norðfirði og til Vöðlavíkur ásamt Ara frænda. Nóg af labbi í sumar :)

Skemmtilegheit… og hvalaskoðun

Almennt 6 Comments

…lóðaríið hjá Yöru er búið!!! Nú fær Yara aftur að hlaupa frjáls um… og ég get hafist handa við að skúra húsið :)

Fyrir utan gluggan á Hafnarstræti 88 syndir núna vaða af höfrungum sem eru líklega að elta síldina sem gekk inn á Pollinn í gær. Það er nokkuð tilkomumikið að sitja í stofunni heima hjá sér og horfa á þessa ofvöxnu “fiska” svamla þarna um! Ætli maður geti farið að gera út á þetta? Hvalaskoðun? Hvað ætli það séu margir í heiminum sem geta návista hvala fyrir utan stofugluggan hjá sér?

Letin kom í bakið á mér

Almennt No Comments

Þeir sem ekki mættu á laugardagsæfinguna (…og tóku jafnvel út æfinguna með göngutúr í bakaríið) fengu það aldeilis í bakið á æfingu í kvöld. Í heila klukkustund voru við látnir skokka og spretta til skiptis á ójöfnum knattspyrnuvellinu á Árskógsströnd á meðan hinir í liðinu fengu aðra og skemmtilegri meðhöndlun :)

FæreyjarÍ næstu viku er ég á leið til Færeyja. Ég hef tvisvar komið þangað áður (2001 & 2002) og í bæði skiptin á Ólafsvöku sem haldin er 28. júlí ár hvert. Í tengslum við Færeyjarferðir mínar hef ég ferðast eitthvað um eyjarnar en nú skal gera gott betur og ætla ég að aflokinni ráðstefnunni sem ég er að sækja, að taka bátinn til Suðureyjar og skoða mig um þar í 2-3 daga.

Ef einhver hefur áhugaverðar upplýsingar um hvað sé hægt að gera í Suðurey þá má hinn sami endilega hafa samband við mig:) Nú ef það er ekkert áhugavert að sjá í Suðurey, þá má hinn sami líka láta mig vita í tíma svo ég geti breytt ferðaáætluninni minni.

Dagbók helgarinnar

Almennt No Comments

Nú er liðin ein viðburðasnauðasta helgi hjá mér í manna minnum… allaveganna síðustu mánuðina :) Í fyrsta skipti í langan tíma gerði ég bara bókstaflega ekkert í helgarfríinu. Viðburðarleysið fyllir mig einvherskonar eirðarleysi sem ég kann engin skil á, tilfinningin er sú að ég sé að missa af einhverju stórkostlegu en verst að ég hef bara ekki hugmynd hvað það er.

Hrossagaukur eða mýrarsnípa ??? :)Allaveganna, ég notaði helgina til þess að efna löngu lofað loforð um heimasíðu handa hinum ágæta félagsskap Kalda. Það eru ár og dagar síðan ég skráði lénið og síðan sem ég setti upp um helgina er eiginlega tilraun númer þrjú. Eftir tvær misheppnaðar tilraunir ákvað ég nefnilega að æfa mig aðeins á sjálfum mér (þessi síða sem þú ert að skoða núna) áður en ég gerði loka tilraun við Kaldaklúbbsverkefnið. Og viti menn… ég er bara nokkuð ánægður með afraksturinn.

Í gær byrjaði ég á að afsaka mig frá æfingu þar sem ég nennti ekki að ferðast allaleiðina til Dalvíkur til þess að skokka í hálftíma (stutt æfing vegna leiksins sem var á fimmtudaginn). Í staðinn lofaði ég þjálfaranum að hreyfa mig eitthvað hérna á Akureyri, enda gerði ég það - dreif mig á fætur labbaði út í bakarí og keypti úrvals bakkelsi sem ég maulaði í morgunsárið. Kíkti svo til Hafsteins frænda og horfði á bikarúrslitaleikinn með honum og hinni ótrúlegu brosmildu Helgu Dís frænku minni. Það skipti ekki máli hvað ég gerði, allt virtist koma henni til að brosa eða hlægja… og ekki er ég nú mjög fyndinn að eðlisfari :)

Í dag var svo stefnan að fara á grásleppuveiðar frá Ólafsfirði með Rikka Lúðvíks frænda mínum. Ég var því heima á laugardagskvöldið enda átti að sigla út klukkan 06:00 á sunnudagsmorguninn. Rúmri klukkustund fyrir miðnætti hringir frændi hinsvegar í mig og sagði að spáin væri ekki góð og líklegast kólgusjór (sem ég hef auðvitað ekki hugmynd hvað þýðir) svo hann ráðlagði mér landkrabbanum eindregið frá því að fara.

Raunin var því að ég eyddi því sem eftir var af laugardagskvöldinu að horfa á endursýningu RÚV á Ljóshærð í laganámi í stað þess að takast á við dýrvitlausa grásleppur og úfið Atlantshafið. Hvílíkt hlutskipti!

Í dag sunnudag kíkti ég svo til Lúlla frænda í hákarlahjallinn. Fundum helling af skrýtnum steinum í fjörunni sem voru svo léttir að ég gat haldið á stærðar “bjargi” í annari hendinni - og svo mjúkur að auðvelt var að móta hann á allan máta. Mín ályktun er að þetta sé sandsteinn en hvernig hann komst þarna í fjöruna og hvaðan veit ég ekki. Það var svolítið af hreinum brennisteini í kring svo jafnvel eru þessu furðusteinar ættaðar frá Strýtunni í djúpi Eyjafjarðar.

Vonbrigði dagsins voru fólgin í að treysta Yöru til að vera lausri örskotsstund við hákarlahjallinn. Hún fann strax staðinn þar sem við sturtum grútnum úr hákarlakerjunum og velti sér upp úr honum! Á leiðinni heim lá við að ég þurfti að kasta upp, svo megn var ólyktin í bílnum! Held reyndar að Yara hafi séð að sér því þægari hund í baði hef ég aldrei séð… nú lyktar hún guði sé lof bara af einhverri hundahárnæringu sem mér tókst að grafa upp!

p.s. setti inn nýjar myndir á myndasíðuna. Tiltölulega ómerkilegar af fuglum og Dalvíkurvelli en samt eitthvað :)

p.s.s. játa hér með að mér fannst Legally blonde skemmtileg mynd :s

Seinheppni í ferðalögum frá Hollandi

Almennt 8 Comments

Það eru einhver sérkennileg álög sem hvíla á mér þegar ég ferðast frá Hollandi. Í annað skiptið í röð lendi ég í hrakningum á ferð minni! Byrjum á fyrri sögunni…

Síðasta haust fór ég til Hollands og dvaldi yfir langa helgi. Leigði mér hjól á lestarstöðinni og ræktaði “Hollendinginn” í mér. Í lok ferðalagsins ætlaði ég mér svo að fljúga frá Schiphol til Kaupmannahafnar og þaðan beinustu leið til Akureyrar með IcelandExpress. En sú ferðaáætlun gekk vægast sagt illa upp!

Til að byrja með svaf ég yfir mig svo ég mætti allt of seint á lestarstöðina í Den haag til að skila hjólinu og þá tók við óhappahrina þar sem ég m.a.:

  • eyddi dýrmætum tíma á lestarstöðinni í að leyta í öllum farangrinum mínum til þess að finna nótuna fyrir hjólina og “kleima” 100€ trygginguna!
  • í tímaleysi mínu tók vitlausa lest svo ég endaði í Amsterdam Central með viðkomu í Haarlem og Amsterdam Sloterdijk en ekki á Schiphol flugvelli!
  • horfði á eftir lestinni til Schiphol af brautarpallinum í Amsterdam!
  • tók leigurbíl frá Amsterdam til Schiphol og þurfti að múta leigubílstjóranum til þess að brjóta nokkrar umferðarreglur til þess að koma mér á leiðarenda á réttum tíma!
  • áttaði mig á að Amsterdam Sloterdijk er við hliðin á Schiphol… hefði getað sparað mér drjúgan skildingin með því að taka leigubílinn þaðann!
  • fékk undanþágu og var hleypt um borð þó svo að búið væri að loka innrituninni (mætti 25 mín fyrir flug)
  • stöðvunarbúnaður í flugvéllinni reyndist bilaður svo flugið frestaðist fyrst um 3 klst (sem ég þurfti að bíða af mér um borð), svo aftur um 3 klst eftir tilraun tvö, og síðan fengum við nýja flugvél 2 klst seinna… í allt 8 klst bið!
  • Horfði á eftir IcelandExpress vélinni leggja frá rampi á Kastrup… þurfti að kaupa annað fargjald til Keflavíkur… þeirri flugvél seinkaði bara um 2 klst!
  • Bókunarvefur Flugfélags Íslands lá niðri vegna viðhalds nóttina sem ég kom heim svo ég gat ekki pantað far með fyrsta flugi norður daginn eftir!

Sem sagt ótrúleg óheppni frá upphafi ferðar til enda.

Nú var ég svo að koma aftur frá Hollandi þ.s. félagi minn Ómar gerði mikið grín af þessu fyrra ferðalagi mínu og brosti á eftir mér þegar ég lagði af stað frá honum heim á leið… framlár og allt of seinn í lestina mína.

Hróðugur sendi ég því Ómari SMS frá Akureyrarflugvelli þegar ég var kominn þangað um að allt hefði nú gengið vel og ég væri kominn á leiðarenda… en viti menn… bíllinn minn reyndist rafmagnslaus! Þegar ég svo fékk góðviljaðan mann til þess að hjálpa mér með start, var ég ekki heppnari en svo að um leið og rafmagn komst á bílinn þá rauk samlæsingin í gang og harðlæsti öllum hurðum… lyklarnir inn í bílnum, jakki, sími og ég hýmandi úti í skítakulda, roki og rigningu (lesist: það er alltaf gott veður á Akureyrii)! Með góðri hjálp reddaðist þetta á lokum, náð var í aukalykla heima og reddað öðru starti en það er alveg ótrúlegt hvað ég er seinheppinn á þessum ferðalögum mínum frá Hollandi!

« Previous Entries Next Entries »