Á dauða mínum átti ég von en ekki þessu …

9:39 am Almennt

Smá grobb. Fékk neðangreint bréf í pósti í dag…”Hi. My Name is Juan [...] . I’am from Colombia. I was googling for information related to CCDM and I found your Master of Science Thesis: CCDM and Open Source Applications. As you note in your thesis, Open Source is a great option to support the requirements of a Cadastral Information System (In a regional or even national scale)

At this moment here at IGAC (Instituto Geográfico Agustín Codazzi) we are starting a project intended to build a New Cadastral Information System for most regions in our country (Colombia). We are evaluating different architectures and tools. That’s because your thesis took our attention. …”

Svo heldur bréfið áfram og endar á ,,Greetings from Bogotá, Colombia.” Ekki hugsaði ég vitund út í það þegar ég sat sveittur og skrifaði Msc ritgerðina mína fyrir nokkrum árum að hún ætti eftir að vera lesin og notuð í Kólumbíu. Svona er heimurinn lítill - eða ég bara svona stór (og lítillátur) … það er annað hvort eða … :)

3 Responses

  1. Sigríður Ásta Hauksdóttir Says:

    Hvort þú telst lítill eða stór á alþjóðlegan mælikvarða þá myndi ég segja að þú hefðir fulla ástæðu til að vera upp með þér að fá svona skeyti…

    Við lestur bloggfærslunnar datt í hausinn á mér hluti úr heilræðavísum Hallgríms Péturssonar,

    Litillátur, ljúfur og kátur
    Leik þér ei úr máta.
    Varastu spjátur, hæðni, hlátur
    Heimskir menn svo láta.

    Reyndar snöruðu Baggalútsmenn þessu að sjálfsöguðu upp í :

    Lítillátur, ljúfur og kátur,
    leik þér ei úr máta.
    varast hlátur er sleypt fer slátur
    úr slíðri dettur, gáta.

    Tel fyrri vísuna eiga ágætlega við jarðbundinn drengskaparmann eins og þig… svo ef þú endar í Colombiu gríptu þá með þér eðalkaffi og ég býð þér í áðurnefndan kaffibolla …

    kv, S

  2. Heiða Björk Says:

    bara verið að breyta heiminum hægri-vinstri.. það er ekkert annað!
    Ég myndi vera montin :)

  3. Frú Eggink Says:

    Til hamingju með þetta! Þú mátt sko alveg vera stoltur af þessu. Frábært að vita til þess að ritgerðin kemur öðrum að góðum notum.
    kveðja frá Hollandi,
    Helga
    ps Á ekkert að kíkja í heimsókn á næstunni. Hver veit, kannski getum við boðið þér í garðpartý í alvöru garði :)

Leave a Comment

Your comment

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Please note: Comment moderation is enabled and may delay your comment. There is no need to resubmit your comment.