Rjúpan

8:26 am Almennt

“Rjúpan sem einnig er nefnd fjallrjúpa er eini villti hænsnfuglinn hérlendis. Hún er frekar þéttvaxin með stutta og breiða vængi. Yfir varptímann er búningurinn brúnleitur. Karrinn verður grádílóttur en kvenfuglinn guldílóttur. Karrinn fær rauðan kamb fyrir ofan augun. Kvenfuglinn, rjúpan er hvít á kviðnum allt árið, en einkenni beggja er að fætur eru fiðraðir. Stélfjaðrir eru svartar. Vetrarbúningur beggja er hvítur. Goggurinn er stuttur, sterklegur og svartur, fætur fiðraðir með dökkum klóm. Augu dökkleit.

  • Latína - Lagopus utus
  • Danska - Fjeldrype
  • Norska - Fjellrype
  • Sænska - Fjállripa
  • Enska - br: Ptarmigan am: Rock Ptarmigan
  • Þýska - Alpenschneehuhn
  • Franska - Lagopéde alpin
  • Spænska - Perdiz nival

Þyngd: 386 - 652gr
Hljóð: Karrarnir gefa frá sér einstakt rop. Hljómar eins og margir hraðir rámir smellir.

Veiðitími samkv lögum: 15.10 - 22.12
Veiðitími samkv reglug: 1. nóvember til 30. nóvember - [frá fimmtudag til og með sunnudag].
Einnig sölubann á veiðibráð og rjúpnaafurðum. ” (Tekið af : veidimadur.is)

img_8990.JPG

Ekki það að ég sé orðinn eitthvað agalega spenntur fyrir rjúpnaveiðunum í vetur. Rakst bara á þessa ógurlega feitu rjúpu á Minni-Grindli um þar síðustu helgi, þar sem hún ósköp gæf bókstaflega rúllaði þarna um garðinum. Í vetur ætla ég að veiða 10 rjúpur og ekki eitt stykki meir þó svo að færi gefist - þykir vænt um þessa fugla og ef þeir væru barasta ekki svona ómisssandi við jólahaldið væri ég ekkert á móti því að fuglinn væri friðaður allt árið um kring.

Leave a Comment

Your comment

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Please note: Comment moderation is enabled and may delay your comment. There is no need to resubmit your comment.