IKEA er drasl!
september 6, 2007 6:25 pm ÓflokkaðFór í IKEA í gær og verslaði mér eldhúsborð. Búandi á Akureyri þurfti ég að drösla borðinu, heil 32. kg, norður með mér í flugi. Ferðalagið frá IKEA og út á flugvöll með borðið góða í baksæti pínkulítillar Hyundai var heldur engin skemmtiferð. Allaveganna þegar ég var búinn að drösla borðinu upp á 3. hæð og ætla að fara að setja það saman sé ég að það vantar allar skrúfur og festingar í pakkann!
Í dag er ég svo búinn að reyna hringja 2x til þess að laga málin. Fyrst beið ég í símanum í 10 mínútur áður en ég gafst upp á biðinni. Í seinna tilvikinu entist ég 15 mínútur og náði þá loks sambandi við þjónustufulltrúa. Meðan ég beið þurfti ég að hlusta á síendurtekna síma mónótóníska útgáfu af einhverri Beethoven laglínu - var að gera mig brjálaðan og var því ekki í allt of góðu skapi þegar ég loksins gat borið erindi mitt upp við þjónustufulltrúann.
Eeeen auðvitað var ég ekki með nótuna við hliðinn á mér þar sem ég hringdi úr vinnunni og þjónustufulltrúinn harðneitaði að afgreiða fyrirspurn mína án hennar - sagði mér að finna hana fyrst og hringja svo aftur! Það er eins og maður hafi ekkert annað við tímann að gera en að standa í svona málum við IKEA. Ég sagði auðvitað að það kæmi ekki til greina að ég myndi hringja aftur og hálfpartinn hvæssti af gremju
Grey stelpan þorði ekki öðru en að fara á sveig við reglurnar í þetta sinn og ætlar víst að senda mér dótið á morgun - en þrátt fyrir það þá líður örugglega langt þangað til ég fer í IKEA að versla mér húsgögn. Þoli ekki svona vesen og ósveigjanleika.
Það er allt orðið svo tæknilegt að maður getur ekki verslað neitt nema gefa upp kennitölu - og starfsfólk þarf ekki lengur að vita neitt um vörurnar eða kúnnana því þær upplýsingar eru allar geymdar í einhverju ómanneskjulegu tölvukerfi. Tæknin er svo sem ágæt en mér finnst að við þurfum samt passa okkur stundum að láta hana ekki ná svo miklum tökum á okkur að við gleymum mannlega þáttinum.
september 7th, 2007 at 11:57 am
hehehehe skemmtilega pirruð færsla :o)
IKEA er drasl.. alltaf þegar ég fer og ætla að kaupa eitthvað þá er varan ‘ekki til en væntanleg’ - svo má maður bara bíða endalaust.. sérstaklega hvimleitt þegar maður er að setja upp skáp í baðherbergi og hurðin er ekki til í tvo mánuði
september 7th, 2007 at 12:05 pm
Eftir að ég fór að viðra þessa skoðun mína við fólk hérna fyrir norðan þá virðast allir vera á sama máli - sérstaklega þetta sem þú nefnir - vörurnar eru aldrei til og alltaf hellings bið eftir þeim. Sérstaklega hvimleitt ef þú ert utan af landi og ert ekki í borginni á hverjum degi.
Annars var það svolítið fyndið að það skyldi koma frétt á RÚV í gær um starfsmannaekklu í IKEA - meira að segja búið að setja upp skilti í andyri versluninnar þar sem fólk er beðið að afsaka lélega þjónustu
Ég hef semsagt örugglega ekki verið fyrsti maðurinn sem pirraðist á þjónustunni hjá þeim… aumingja starfsfólkið.
september 17th, 2007 at 11:29 am
Jiminn ég ætlaði einmitt að kommenta um setninguna frægu - “vara ekki til en væntanleg” - ótrúlegt samt að þarna er fullt út úr dyrum allar helgar! IKEA er sjáið til fullgildur samkeppnisaðili Smáralindar, Kringlunnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins - skemmtilegur kokteill en alsatt samt sem áður.
júlí 14th, 2009 at 6:40 pm
leuXkZ