Letin kom í bakið á mér
maí 21, 2007 11:09 pm AlmenntÞeir sem ekki mættu á laugardagsæfinguna (…og tóku jafnvel út æfinguna með göngutúr í bakaríið) fengu það aldeilis í bakið á æfingu í kvöld. Í heila klukkustund voru við látnir skokka og spretta til skiptis á ójöfnum knattspyrnuvellinu á Árskógsströnd á meðan hinir í liðinu fengu aðra og skemmtilegri meðhöndlun
Í næstu viku er ég á leið til Færeyja. Ég hef tvisvar komið þangað áður (2001 & 2002) og í bæði skiptin á Ólafsvöku sem haldin er 28. júlí ár hvert. Í tengslum við Færeyjarferðir mínar hef ég ferðast eitthvað um eyjarnar en nú skal gera gott betur og ætla ég að aflokinni ráðstefnunni sem ég er að sækja, að taka bátinn til Suðureyjar og skoða mig um þar í 2-3 daga.
Ef einhver hefur áhugaverðar upplýsingar um hvað sé hægt að gera í Suðurey þá má hinn sami endilega hafa samband við mig:) Nú ef það er ekkert áhugavert að sjá í Suðurey, þá má hinn sami líka láta mig vita í tíma svo ég geti breytt ferðaáætluninni minni.