Ellingsenspúnninn þrælvirkar

Almennt No Comments

Það er ekki á hverjum degi sem maður stundar laxveiði í Fljótánni með Ellingsenspúni. Myndin hér að neðan er tekin af því þegar ég og Mattijs tókum þátt í því að draga fyrir helstu hyli í Fljótánni í von um að góma hrygnur í klak.

Samtals gómuðum við 2 hrygnur og 4 hænga, allt frekar smávaxið, í kring um 5 pund. Hinsvegar gómuðum við líka heilan helling af vænum 2-4 punda bleikjum sem við reyndar slepptum aftur.

img_2199.jpg

Á ferðalagi um Norðurland

Almennt 1 Comment

Síðustu viku var hjá mér í heimsókn félagi minn Mattijs Eggink frá Hollandi og ferðuðumst við töluvert hér um Norðurland. Skoðuðum Ásbyrgi, Dettifoss og Mývatn. Fórum á fjórhjól frá Draflastöðum. Kíktum á Hjalteyri. Dvöldum í 3 daga vestur í Fljótum og enduðum reisuna á því á skreppa á skak út frá Ólafsfirði. Vikan var hreint út sagt stórkostleg, en mikið vorum við þreyttir á föstudeginum, því planið var svo stíft að varla gafst tími til að sofa milli dagskrárliða!

Myndir frá ferðalaginu hafa verið settar á myndasíðuna.

Mynd 1: Stoltur með einn golþorskinn sem veiddist fyrir utan Hvanndali

Mynd 2: Mattijs stillir sér upp fyrir framan Dettifoss