Færeyjaferð - myndir
júní 19, 2007 Almennt 3 CommentsSælt veri fólkið. Loksins hafði ég mig í að setja myndirnar frá Færeyjum inn á myndasíðuna. Biðst afsökunar hversu margar þær eru en svona er þetta barasta… ég er allt of myndaglaður. Ætla að reyna að komast í það næstu daga að skrifa texta við hverja og eina mynd. Það er margt að segja frá um margar myndirnar og best að gera það sem fyrst svo ég gleymi þessu ekki!
Annars er allt gott að frétta. Bissý tími framundan, verð á þönum næstu 4 helgar. Fyrst 3 brúðkaup og svo gönguferð frá Fljótunum yfir í Hóla í Hjaltadal. Síðan verður ein vika pása, en svo ætla ég að ganga frá Kaldakinn (já Kaldakinn heitir árans kinnin nefnd eftir vindinum ekki hitastiginu!) með Ferðafélagi Akureyrar og yfir í Náttfaravíkur. Systir mín er búinn að gefa mér MSNlegt loforð um að koma með, verður hrikalega gaman. Svo er það sextugs afmælið hans pabba í byrjun ágúst, en þá stefni ég á að ganga frá Norðfirði og til Vöðlavíkur ásamt Ara frænda. Nóg af labbi í sumar
![]()