apríl 30, 2007
Almennt
No Comments
Það er frábært veður í Hollandi þessa daganna og ekkert nema yndislegt að vera hérna. Mætti strax á leik míns gamla fótboltafélags Ariston’80 gegn FC Boshuizer á laugardaginn alveg dauðþreyttur eftir ferðalagið frá Íslandi. Ariston’80 vann og tryggði þar með veru sína áfram í 4. deild Hollensku áhugamannadeildarinnar. Eftir leikinn var haldin heilmikil veisla í Sportcentrum í TU Delft áður en haldið var út að borða í miðbæ Delft um kvöldið.

Ég var mikið þreyttur þegar ég loksins kom heim til Miguel félaga míns um kvöldið en hann hafði lofað mér að gista hjá sér. Mér brá hinsvegar þegar ég sá að fletið sem ég átti að sofa á var einungis sæng sett á kalt steypt gólf og lak til að breiða yfir mig. Enda svaf ég nánast ekkert þá nóttina sem var ekki nógu sniðugt miðað við lítinn svefn nóttina áður. Það var því nokkuð þreyttur Tryggvi sem ferðaðist frá Delft til Haag síðar um sunnudaginn.
Á sunnudeginum voru tveir merkisviðburðir í Hollandi. Úrslit hollensku knattspyrnunar réðust, en 3 lið áttu möguleika á að sigra: AZ Alkmaar sem Grétar Steinsson spilar með -Ajax og PSV Eindhoven. Um kvöldið var síðan svokallaða Koninginennacht í Haag sem er sambærileg menningarnótt í Reykjavík, um 400.000 manns samankomin í miðbænum að hlusta á tónlist og aðra menningarviðburði.
Við Ómar “Steinsson” byrjuðum á því að ferðast til Alkmaar til þess að vera viðstaddir ef þeir myndu landa titilinum og sjá hvernig bærinn myndi umturnast í fangaðarlátum. Miðbær Alkmaar var fullur af aðdáendum og leikurinn var sýndur út um allan bæ, á öllum ölstofum og þar sem hægt var að koma sjónvarpi fyrir. Samt tókst okkur Ómar ekki að sjá mikið af honum, slíkur var fjöldi fólks samankominn þarna.
Ævintýrið endaði hinsvegar snemma fyrir AZ Alkmaar. á 19. mínútu var markmaður þeirra rekinn útaf fyrir að brjóta af sér inn í teig, Grétari Steinssyni var svo í kjölfarið skipt út af fyrir nýjan markmann. Þrátt fyrir hetjulega baráttu tapaði AZ 3-2 og draumurinn var úti fyrir smáliðið að vinna hollenska deildarmeistaratitilinn. Stórvaxnar fótboltabullur brustu í grát og stemmningin var öll hin grátlegasta þegar leikurinn kláraðist og PSV voru krýndir meistarar. Topppunktur ferðarinnar var þegar Grétari var skipt út af því þá söng allur bærinn nafn hans í nokkrar mínútur, sem var alveg stórkostleg upplifun og fékk hárin til að rísa. Hann er gríðarlega vinsæll þarna og gaman að sjá samlanda sinn standa sig vel í útlandinu.
Um kvöldið var farið út á lífið í Haag. Við Ómar fórum og hittum Íslendingana Pétur, Árna, Halldór og Rúnu nemendur í TU Delft auk Elsu vinkonu frá tíma mínum hér og skemmtum okkur langt fram á nótt. Við Ómar drösluðumst ekki heim fyrr en um fjögur leytið alveg uppgefnir eftir daginn. Sjálfur svaf ég til 3 daginn eftir :s
apríl 22, 2007
Almennt
2 Comments
Loksins, loksins er sumarið komið! Ekki það að veturinn hafi verið eitthvað sérstaklega erfiður, mér finnst bara sumarkoman vera með því skemmtilegra sem ég upplifi. Fast á hæla kemur fyrsta snjókoman að vetri
Eins er sumardagurinn fyrsti svo hátíðlegur. Í gamla daga var maður vanur að keppa í Árbæjarhlaupinu á þessum degi, eitthvað sem mig hlakkaði til allt árið. Á enda nokkra verðlaunapeninga fyrir þátttöku mína í því, þó svo ég hafi aldrei unnið. Eilíflega í öðru eða þriðja. Síðan voru blessuðu sumargjafirnar líka minnistæðar, finnst það vera skemmtilegur siður sem megi ekki hætta (þetta eru ákveðin dulin skilaboð til móður minnar ef hún asnast til að lesa þetta:)).
Hér eru annars nokkrar staðreyndir um sögu sumardagsins fyrsta (heimild):
- sumardagurinn fyrsti er á fimmtudegi, 19.-25. apríl
- var mikill hátíðis- og veitingadagur eins og jól eða nýár og það er gamall siður að óska hver öðrum gleðilegs sumars
- sumargjafir eru þekktar frá 16. öld og eru miklu eldri en jólagjafir
- ekki var unnið nema nauðsynjastörf og táknræn sumarstörf
- börn notuðu daginn til að leika sér, komu mörg saman og sums staðar tóku fullorðnir þátt í leikjunum
- fólk fór yfirleitt í spariföt
- sumir hleyptu hrútum, kálfum og jafnvel kúm út úr húsi, ef gott var veður, til að leyfa dýrunum að heilsa sumrinu og skemmta sér við að horfa á leik þeirra
- frá árinu 1921 er sumardagurinn fyrsti gerður að barnadegi og gefið frí í skólum
- sumardagurinn fyrsti er einn af ellefu löggiltum fánadögum íslenska lýðveldisins
… ooog þar með vitið þið það!
Sjálfur fagnaði ég nýju sumri á Minni-Grindli í Fljótum. Veðrið var yndislegt og ég gerði býlið tilbúið fyrir sumarið. Tók hlera frá gluggum, setti upp skjólvegginn, hjó tré, sagaði niður í eldivið og sjósetti bátinn. Meira að segja lagði net, en veiddi ekki nema einn skitinn ufsa … held meira að segja að ég hafi veitt hann tvisvar því ég sleppti einum í fyrstu vitjun. Hann ætlaði sér að vera veiddur og þó svo að blágrátt ufsaholdið sé nú ekki það girnilegasta sem maður sér þá bragðaðist hann bara ágætlega 
apríl 18, 2007
Almennt
4 Comments
Áðan bárust mér þær gleðifregnir að vinir mínir í Hollandi Helga og Mattijs hafi fæðst lítill drengur. Get ekki annað sagt en ég er í skýjunum yfir fréttunum og hlakka óskaplega mikið til að sjá hann þegar ég vísitera Hollandi í byrjun maí
P.s. vona samt að pabbinn fari nú ekki að kenna honum að halda með Groningen… það væri nú ekki vænlegt upp á framtíðina 
apríl 10, 2007
Nöldur
2 Comments
Nú er maður búinn að eta yfir sig af sætindum enn eina ferðina. Það ætti að fara að taka þessa lögskipuðu átdaga, eins og jól og páska og dreifa þeim betur yfir árið, eða jafnvel breyta þeim til hollari vegar. Reyndar er ég búinn að hreyfa mig töluvert um páskana, fór 3x á skíði í göngutúra og svo eitthvað boltasprikl, en spurning hvort það vegi upp á móti sælgætisátinu
Ég og Þórunn Þöll fórum í göngutúr laugardaginn fyrir páska, bæði í svokallaða hundagöngu á Blómsturvöllum svo og að skoða fornminjar á Gásum, og vorum með myndavélina meðferðis. Þær myndir má nú sjá á myndasíðunni undir aprílmánuði.

Annars er allt gott að frétta af mér. Nú er að byrja svolítil törn í vinnunni sem mun standa fram til loka þessa mánaðar en þá ætla ég að taka mér viku frí og kíkja til Hollands í heimsókn til allra vina minna þar. Svo byrjar önnur vinnutörn sem teygir sig fram í miðjan júní og sæki ég m.a. ráðstefnu í Færeyjum á þeim tíma. Síðan er bara sumarið komið og maður missir alla í sumarfrí.