Aðalfundur B - Roundtable 7

Almennt No Comments

Í dag er stóri dagurinn í félagsstarfi okkar Roundtable 7 manna á Akureyri. Nú er ég búinn að vera í þessum félagsskap í rúmt ár og get með engu móti þakkað nógui mikið fyrir það tækifæri að fá að taka þátt í þessu starfi. RT-7 samanstendur af hóp af skemmtilegum strákum sem koma úr mismunandi áttum en hafa það allir sameiginlegt að hafa gaman af lífinu.

Dagurinn í dag byrjaði á því að við hittumst klukkan 8.45 í útjaðri bæjarins. Þar vorum við settir upp á vagn dreginn af traktor og keyrðir upp á æfingasvæði mótorkrossmanna hérna upp í fjalli. Þar tók við ratleikur þar sem síðasta þrautin var að hver og einn átti að leysa verkefni á gröfu, taka upp stein án þess að moka upp of mikilli mold og láta hann falla ofan í dekk. Auðvitað leysti ég þetta verkefni á mettíma en gróf svona um 1-2 rúmmetra af mold með :) Hraði á kostnað fagurfræðinnar!

Síðan tók við sjálfur aðalfundurinn og hefðbundin aðalfundastörf, og markmiði morgunfundarins uppfyllt að klára einn kassa af hálfs lítra bjór.

Er í vinnunni núna að klára nokkur atriði og gafst smá ráðrúm til þessara skrifta en við tekur ferð í heita pottinn í heimahúsi í Síðuhverfi, svo verður farið í fordrykk í Giljahverfi áður en sjálfur kvöldfundurinn hefst á Gamla Lund á Oddeyrinni klukkan 19:00. Í fáum orðum uppskrift að skemmtilegum og góðum degi ;) Góða helgi!

Myndasíða orðin aðeins breytt

Nöldur No Comments

Fyrir utan að hafa aðeins breytt útlit er ég búinn að opna fyrir kommentakerfi svo nú er hægt að skrifa athugasemdir við myndirnar mínar. Veit ekki hversu sniðugt það er því slíkt er víst vinsælt að spamma með hinum ýmsa óþverra. Verð reyndar að viðurkenna að útlit myndasíðu minnar má bæta töluvert en þetta er það sem ég nenni að gera í bili… látum betrumbætur bíða betri tíma.

Vorbragur

Almennt 1 Comment

Ákvað að hressa aðeins upp á forsíðumyndina í takt við síðustu skrif!

Aftur framtal … enn eitt árið

Almennt 4 Comments

Loksins, loksins er ég búinn að klóra mig fram úr þessu blessaða framtali. Það var af flóknara taginu þetta árið og kenndi mér þá lexíu að ekki má treysta forskráningu bankanna. Með hyggni minni og klókindum… já ok kannski einskærri heppni tókst mér að finna það út að ég get margfaldað uppgefinn lántökukostnað vegna íbúðarkaupa með nánast pí frá því sem forskráð var í framtalinu. Það á eftir að skila sér í ágúst skal ég segja ykkur.

Reyndar er þetta kannski ekki skemmtilegasta umræðuefni í heimi og mun með engu móti auka umferðina á þessa blessaða heimasíðu… en kannski svona smá innsýn inn í hvað ég er að brasa þessa daganna. Æfing á Dalvík í kvöld og síðan landsleikurinn. Nóg að gera hjá mér sem kemur svolítið niður á henni Yöru sem er ansi ör þessa 5-6 klst sem ég er heima með henni yfir daginn!

Lóan komin, heiðskýra hérna fyrir norðan, skattskýrslan farin… er ekki barasta að koma vor? Það fer að koma tíma á mig að skipta út þessari köldu mynd af Akureyri sem toppar þessa blessaða vefsíðu og setja inn einhverja hlýrri af lóu eða sólskríkju (ætli það sé ekki eini fuglinn á Íslandi sem hefur mismunandi nafn eftir árstíð?).

Þó líði ár og öld

Almennt 1 Comment

Úff, það er meira hvað maður er latur við að skrifa hérna inn. Er búinn að lofa fyrir löngu að setja inn ferðasöguna frá NY og LV en bara einhvernveginn ekki komið því í verk. Svo þegar ég var að spæla í þessu í kvöld komst ég að þeirra niðurstöðu að líklegast væri ég búinn að gleyma öllu því sem dreif á daga mína þar :) Var hinsvegar ákaflega stoltur að hafa sett inn myndirnar, bara til þess að komast að því fyrr í dag að tengillinn inn á þær virkaði ekki… það er hinsvegar komið í lag núna.

Annars eru síðustu vikur búnar að vera frekar bissý hjá mér. Mikið að gerast í vinnunni, allt á fullu raunar, og ég á flugi milli Eyrar og Víkur að sinna hinum ýmsu erindum. Frá fundarsetum og ráðstefnum til árshátíðargleði sem haldin var á Hótel Borg og hvar sem maður tróð upp með gítarinn og söng nokkur lög… og þóttist vera skemmtilegur!

Efast um að einhverjir lesi þetta raus mitt, enda kannski var það ekki ætlunin í byrjun að vera einhver staðfastur bloggari… enda hlutverk þessarar heimasíðu fyrst og fremst að birta myndir sem ég hef verið að taka. Hinsvegar, mun áfram læðast inn ein og ein skrif þó svo langt geti liðið á milli… já þó líði ár og öld, ekki örvænta.

P.s. datt titillinn í hug þegar ég labbaði fram hjá Bautanum áðan en þar stendur einmitt skrifað á alla glugga: “Bautinn - þó líði ár og öld!” … ætli það sé skírskotun í það hvað maður sé lengi að fá steikina sína framreidda?

Setti inn nokkrar myndir…

Almennt 1 Comment

…frá ferðalaginu í Ameríkunni… aðeins búinn að yfirfara allt heila klabbið og reynt að sortera betur en áður… skrifa afganginn af ferðasögunni síðar !

Leaving Las Vegas

Almennt 1 Comment

Jæja þá er komið að endanum á þessari blessaðri dvöl í Las Vegas. Búinn að sitja ráðstefnu nú í 3 daga samfleytt, inni á meðan 25° stiga hita og heiðskýra hefur verið utandyra. Reyndar búinn að bralla margt hérna utan vinnu. Fórum að skoða Hoover stífluna á sunnudaginn og í morgun fórum við að skoða Grand Canyon úr lofti.

Svo er maður líka búinn að skoða Las Vegas aðeins, helstu túristastaðina. Fór upp í nákvæma eftirlíkingu af Eiffel turninum, horfði þaðan á furðulegasta dansandi gosbrunn sem ég hef augum litið, kíkti á Hótel Venetian sem er með Markúsarkirkju, síki, gondóla og alles, horfði á Sírenur vinna sjóræningja í bardaga á sjóræningjaskipum á Hótel Treasure Island og ég veit ekki hvað.

Hinsvegar verð ég að viðurkenna að ég hef engan veginn staðið mig í fjárhættuspilunum… hef þetta barasta ekki í mér að eyða peningnum svona í óþarfa því maður þarf ekki að fylgjast lengi með í Casínóinu til að sjá hvernig leikurinn endar. Maður gæti allt eins rétt gjafaranum peningana.

Fer til New York á morgun og mun þá skilja við ferðafélaga mína. Ætla að vera hrikalega menningarlegur í New York, kíkja á söfn tengd menningu, sögu og listum… svo ætla ég á Jazzklúbbinn Blue Notes og njóta alvöru jazz. Þetta verður skemmtilegt.

Búinn að uppfæra myndasíðuna mína með myndum frá Las Vegas - sjá mars. Afsakið mig innilega hvað ég hef verið duglegur að taka myndir… veit að þetta er allt of mikið… tek til í þessu þegar ég kem heim og hef betri tíma.

New York og Las Vegas

Almennt 1 Comment

Nú er maður kominn til Las Vegas. Ferðin gekk vel í gær en maður er samt orðinn svolítið ruglaður á tíma mismuninum. Nú er klukkan u.þ.b. 22 hér í Vegas en 6 að morgni heima á Íslandi!

Gisti í Brooklyn eftir að við komum til NY í gær. Brooklyn er svolítið skítug í samanburði við Manhattan og stutt á milli slæmra og ágætra hverfa. Á leið okkar á franskan veitingastað í gærkveldi þurftum við Örn vinnufélagi minn að ganga í gegnum misjöfn hverfi þar sem allskonar lið varð á vegi okkar en þetta reddaðist svo sem á endanum :)
Í morgun lá svo leið okkar á Manhattan. Þar sem ég mun koma til með að stoppa þar í 4 daga á leiðinni heim og þar sem Örn hafði oft komið þangað, nenntum við ekkert að túristast neitt heldur bara tókum subway-inn á Union Square og röltum síðan þaðan upp Manhattan og í Central Park þar sem við settumst í blíðunni og gæddum okkur á sushi. Manni líður hálf fáranlega að koma fyrst til New York, eiginlega eins og argasta sveitamanni sem er að koma í fyrsta sinn í þéttbýlið. Maður gapir og gapir yfir stórfengleikanum, kjálkinn nánast dregst með jörðinni, hvað þetta allt er stórt og mikið, og hvað allt er eiginlega yfirþyrmandi. Ljósaskiltin á Times Square eru ágætis dæmi um yfirþyrmanleika!

Ernst Stavro BlofeldLas VegasLenntum svo í Las Vegas nú í kvöld. Hér er ágætis veður, spáin segir um 11° gráður um nóttu og 23° yfir daginn. Ljósadýrðin er hér annsi mikil og það er eins og öll sú dýrð eigi að draga okkur inn í spilavítin eins og flugur að ljósi. Maður kannast annsi vel við við sig eftir allar Hollywoodmyndirnar, t.d. hótelið þ.s. vondi karlinn Ernst Stavro Blofel bjó á í James Bond myndinni Diamonds are forever. Það verður hinsvegar gaman að skoða sig betur um á morgun. Ætli það sé hinsvegar ekki best að hvíla sig núna, stór dagur á morgun, ráðstefnan byrjar um hálf níu svo maður verður að vera vel upplagður.

Eitt enn… á milli okkar þriggja vinnufélaganna í ferðinni er innbyrðis “prófessorakeppni”… þ.e.a.s. menn fá stig fyrir axasköft og klúður sem geta orðið ef maður er ekki alveg 100% með hugann við efnið… og viti menn… ég hef ekki enn þá fengið stig en félagar mínir allnokkur:D Hver hefði trúað því fyrirfram :)

Að lokum smá myndband af göngutúr okkar félaganna nú í kvöldsárið í Las Vegas… maður verður að kunna að skemmta sér!