Lét loksins verða af því í blíðunni í dag að rúnta fram í botn Eyjafjarðar, vopnaður myndvélinni, eilítið framlár eftir útstáelsi helgarinnar. Tók fullt af myndum, sumar hreint út sagt ágætar held ég. Myndin að neðan er úr Djúpadal. Sjá myndasíðu.
Annars var helgin frábær hjá mér. Á föstudeginum fór ég á þorrablót á Ketilási í Fljótum, sem endaði með eftirpartýi á SKeiðsfossi sem stóð til morguns. Dreif mig svo heim á laugardeginum til að keppa fyrir Dalvík á móti Magna Grenivík sem við unnum 1-0. Eftir leikinn fór liðið út að borða á Greifanum og svo djammað langt fram á nótt. Mér leið auðvitað eins og einhverjum ellismelli þarna innan um liðsfélaga mína því ég var lang elstur, sá yngsti 16 og sá næst elsti 24. En maður er ungur í anda:) Myndin hér að neðan er úr Stíflu í Fljótum.
Er á leið til Akureyrar aftur, sit á Reykjavíkurflugvelli og læt tímann líða með því að væflast á netinu. Er ennþá að drepast úr harðsperrum eftir leikjatörnina við Þór og hlakka því ekki mikið til æfingarinnar í kvöld… miklu frekar til heita baðsins á eftir:)
Æfinga dagskráin verður með erfiðara móti næstu daga því ég mun æfa með tveim liðum næstu vikurnar, því KA hefur boðið mér til æfinga líka. Það verður gaman en örugglega svolítið erfitt því ég er ekki alveg eins léttur og síðast þegar ég var að sprella í fótbolta með 1. deildar liði. Vonandi samt gaman.
Kepptum annan leik á móti Þór Akureyri í gærkveldi sem við töpuðum 2-0. Nú mættu þeir með sitt sterkasta lið en við vorum hálfpartinn á hækjum. Nokkrir meiddir eða uppgefnir eftir leikinn daginn áður. Átti ágætis leik, en mikið var mér brugðið þegar ég heyrði einn áhorfendan fyrir aftan markið segja: ,,markmaðurinn hjá Dalvík veitir greinilega ekki af æfingunni”. Kannski ágætis vísbending um að ég þurfi að koma mér í betra form! Enda er ég núna varla göngufær vegna strengja.
Til hamingju Ísland með sigurinn á Frökkum. Ég stökk til í sófanum og lifði mig algjörlega inn í leikinn, þó svo að ég horfði á hann á Rúv+ og vissi hvernig hann hefði farið. Maður er jú geðveikur.
Allaveganna er á leið suður í kvöld. Fundur á morgun í vík þeirri er kennd er við reykingar. Byrja ég enn og aftur.
Ég lék minn annan leik fyrir Dalvík/Reyni í Norðurlands mótinu í knattspyrnu 2007 í kvöld og gerði mér lítið fyrir og hélt hreinu í sigurleik gegn Þór Akureyri. Leikurinn þróaðist á þá leið að eftir jafnræði í byrjun fékk einn þeirra manna rautt fyrir kjaftbrúk á 38. mínútu fyrri hálfleiks. Við vorum með yfirhöndina eftir það, en náðum ekki að skora fyrr en seint í síðari hálfleik. Ég bjóst við Þórsliðinu sterkara, þeir eru jú í 1. deild en við í 3. deild en þeir voru víst að prófa marga unga leikmenn, fædda ‘88-’90! Maður er víst orðinn svoldið gamall.
Varðandi grein mína hérna að neðan um reykingar þá rakst ég á vísu um reykingar sem Stefáni frá Möðrudal, málari með meiru, kyrjar. Varla hafði sá öðlingur rangt fyrir sér! Mér finnst ég reyndar farinn að hljóma fanatískur í garð reykinga, þvert á það sem ég ætlaði mér!
Ég reyki ekki… var allaveganna viðhorf mitt til eigin reykinga um langa hríð… og þar af leiðandi er þetta ekki vandamál… því ég reykti bara þegar ég fór að skemmta mér.
Reykingar eru samt ósiður og verst þótti mér að upplifa andþrengsli eftir skemmtilega helgi eða utanlandsferð… það má nefnilega allt í útlöndum!
Svo horfði ég á einhvern þátt á Skjá einum í október með Valgeir Skagfjörð sem fjallaði um hvernig maður ætti að hætta að reykja. Í fyrstu reyndi ég að skipta yfir á aðra stöð, en úrvalið var arfaslakt, svo ég neyddist til að horfa á. Hann sagði:
-,,Hægt er að skipta fólki upp í tvær fylkingar, annarsvegar þá sem reykja, hinsvegar þá sem reykja ekki!”
- ,,Það er enginn millivegur þarna á, annað hvort reykir þú, eða þú reykir ekki.”
-,,Ef þú reykir bara á djamminu þá ertu reykingamaður, það er ekkert sem heitir ‘hófreykingamaður’ eða laumu reykingamaður, þetta er einfalt reiknisdæmi”
Ótrúlegt en satt þá frelsaðist ég þarna. Með því að skilgreina mig sem reykingamann, þó svo að ég reykti mesta lagi 3-4 baccatello vindla á viku þá var ég kominn með skilgreint vandamál sem ég gat ráðið lausnar á. Ef maður nær að skilgreina vandamálið þá er mun auðveldara að ráða bót á því. Ef maður stendur í þeirri trú að reykingar manns séu ekki vandamál, afhverju þá hætta?
Það var ósköp vetrarlegt um að litast á Akureyri í dag. Það snjóaði á fullu og allt fór á kaf… að mér fannst. Kunnugir sögðu mér þó að þetta væri ekkert og oft hefði snjóað svo mikið hérna á Akureyri að allt fenti í kaf svo ekki mótaði fyrir bílum lengur. Þá voru troðnir stígar svona u.þ.b. eftir miðjum götunum sem fólki var beinlýnis ætlað að ganga því ef stigið var út af þeim var hætta á stíga á þak á bíl eða þaðan af verra. Á erfitt með að ímynda mér svoleiðis snjófarg í dag. Blessuð gróðurhúsaáhrifin með tilheyrandi hlýnun jarðar hafa gert það að verkum að fimbulvetrar á þeim mæliskala er ekki að vænta í bráð.
Rakst á þetta myndskeið youtube.com og fannst það óborganlega fyndið. Það sýnir gamalt viðtal sem tekið var við Kidda í Videoflugunni á Egilsstöðum. Rifjar upp fyrir mér diskó sem hann var með á Orminum einhverntíman fyrir löngu og ég skemmti mér konunglega á. Enda engin furða, maðurinn er stór skemmtilegur.