Dagskráin í dag er…

Nöldur 3 Comments

…að vinna Mattijs í skvassi! Þessi færsla gæti hugsanlega verið tekin út síðar… veltur á úrslitunum :)

Síðbúin Páskakveðja

Nöldur 2 Comments

Nú er maður búinn að eta yfir sig af sætindum enn eina ferðina. Það ætti að fara að taka þessa lögskipuðu átdaga, eins og jól og páska og dreifa þeim betur yfir árið, eða jafnvel breyta þeim til hollari vegar. Reyndar er ég búinn að hreyfa mig töluvert um páskana, fór 3x á skíði í göngutúra og svo eitthvað boltasprikl, en spurning hvort það vegi upp á móti sælgætisátinu :)

Ég og Þórunn Þöll fórum í göngutúr laugardaginn fyrir páska, bæði í svokallaða hundagöngu á Blómsturvöllum svo og að skoða fornminjar á Gásum, og vorum með myndavélina meðferðis. Þær myndir má nú sjá á myndasíðunni undir aprílmánuði.

Fyrirsætan Yara

Annars er allt gott að frétta af mér. Nú er að byrja svolítil törn í vinnunni sem mun standa fram til loka þessa mánaðar en þá ætla ég að taka mér viku frí og kíkja til Hollands í heimsókn til allra vina minna þar. Svo byrjar önnur vinnutörn sem teygir sig fram í miðjan júní og sæki ég m.a. ráðstefnu í Færeyjum á þeim tíma. Síðan er bara sumarið komið og maður missir alla í sumarfrí.

Myndasíða orðin aðeins breytt

Nöldur No Comments

Fyrir utan að hafa aðeins breytt útlit er ég búinn að opna fyrir kommentakerfi svo nú er hægt að skrifa athugasemdir við myndirnar mínar. Veit ekki hversu sniðugt það er því slíkt er víst vinsælt að spamma með hinum ýmsa óþverra. Verð reyndar að viðurkenna að útlit myndasíðu minnar má bæta töluvert en þetta er það sem ég nenni að gera í bili… látum betrumbætur bíða betri tíma.