Gleðileg Jól!

Óflokkað No Comments

… og farsæld á komandi ári!

Hef verið ótrúlega latur við að skrifa hérna inn síðustu mánuði og enn latari við að taka myndir en vonandi verður þar einhver breyting á með nýju ári :)

IKEA er drasl!

Óflokkað 4 Comments

Fór í IKEA í gær og verslaði mér eldhúsborð. Búandi á Akureyri þurfti ég að drösla borðinu, heil 32. kg, norður með mér í flugi. Ferðalagið frá IKEA og út á flugvöll með borðið góða í baksæti pínkulítillar Hyundai var heldur engin skemmtiferð. Allaveganna þegar ég var búinn að drösla borðinu upp á 3. hæð og ætla að fara að setja það saman sé ég að það vantar allar skrúfur og festingar í pakkann!

Í dag er ég svo búinn að reyna hringja 2x til þess að laga málin. Fyrst beið ég í símanum í 10 mínútur áður en ég gafst upp á biðinni. Í seinna tilvikinu entist ég 15 mínútur og náði þá loks sambandi við þjónustufulltrúa. Meðan ég beið þurfti ég að hlusta á síendurtekna síma mónótóníska útgáfu af einhverri Beethoven laglínu - var að gera mig brjálaðan og var því ekki í allt of góðu skapi þegar ég loksins gat borið erindi mitt upp við þjónustufulltrúann.

Eeeen auðvitað var ég ekki með nótuna við hliðinn á mér þar sem ég hringdi úr vinnunni og þjónustufulltrúinn harðneitaði að afgreiða fyrirspurn mína án hennar - sagði mér að finna hana fyrst og hringja svo aftur! Það er eins og maður hafi ekkert annað við tímann að gera en að standa í svona málum við IKEA. Ég sagði auðvitað að það kæmi ekki til greina að ég myndi hringja aftur og hálfpartinn hvæssti af gremju :) Grey stelpan þorði ekki öðru en að fara á sveig við reglurnar í þetta sinn og ætlar víst að senda mér dótið á morgun - en þrátt fyrir það þá líður örugglega langt þangað til ég fer í IKEA að versla mér húsgögn. Þoli ekki svona vesen og ósveigjanleika.

Það er allt orðið svo tæknilegt að maður getur ekki verslað neitt nema gefa upp kennitölu - og starfsfólk þarf ekki lengur að vita neitt um vörurnar eða kúnnana því þær upplýsingar eru allar geymdar í einhverju ómanneskjulegu tölvukerfi. Tæknin er svo sem ágæt en mér finnst að við þurfum samt passa okkur stundum að láta hana ekki ná svo miklum tökum á okkur að við gleymum mannlega þáttinum.

Kominn heim

Óflokkað No Comments

Mikið er gott að vera kominn heim aftur. Reyndar stoppa ég stutt við fyrir norðan að þessu sinni því ég fer suður vegna vinnu í lok vikunnar… en samt heima er alltaf best :) Ætla mér að uppfæra myndasíðuna ef mér gefst tími til í kvöld eða annað kvöld.