Tilviljun?

Almennt 1 Comment

Tilviljun?Myndin hér við hliðin á var tekin á skíðaferðalagi með Árseli í kringum árin 1991-1993. Spurning hvort ég hafi haft einhverja tilfinningu fyrir því að í sama hús myndi ég flytja 15 árum seinna? Nota þessar sömu dyr og sjást á myndinni (reyndar búið að taka húsið í gegn í millitíðinni) og sitja í þessum sömu tröppum þegar vel viðrar :)

Þjóðfélagsbreytingar

Almennt 4 Comments

Meðfylgjandi frétt er klipp út úr norðlenska vikublaðinu Degi, miðvikudaginn 9. febrúar 1977. Hún ber glöggt vitni um þær miklu breytingar sem orðið hafa á Íslandi á síðustu þremur áratugum. Þó svo að fréttin sé vissulega brosleg, ekki síst fyrirsögnin þá er það jú auðvitað bara staðreynd að utanaðkomandi áhrif voru ekki mikil á Íslandi fyrr en kannski síðustu áratugina og viðburðir sem þessir þótt merkilegir í fálætinu fyrir norðan.

Negri í Þistilfirði

Dagur, 9. febrúar 1977

Á dauða mínum átti ég von en ekki þessu …

Almennt 3 Comments

Smá grobb. Fékk neðangreint bréf í pósti í dag…”Hi. My Name is Juan [...] . I’am from Colombia. I was googling for information related to CCDM and I found your Master of Science Thesis: CCDM and Open Source Applications. As you note in your thesis, Open Source is a great option to support the requirements of a Cadastral Information System (In a regional or even national scale)

At this moment here at IGAC (Instituto Geográfico Agustín Codazzi) we are starting a project intended to build a New Cadastral Information System for most regions in our country (Colombia). We are evaluating different architectures and tools. That’s because your thesis took our attention. …”

Svo heldur bréfið áfram og endar á ,,Greetings from Bogotá, Colombia.” Ekki hugsaði ég vitund út í það þegar ég sat sveittur og skrifaði Msc ritgerðina mína fyrir nokkrum árum að hún ætti eftir að vera lesin og notuð í Kólumbíu. Svona er heimurinn lítill - eða ég bara svona stór (og lítillátur) … það er annað hvort eða … :)

Skíðafrí í Austurríki

Almennt 1 Comment

Nýjar myndir á myndasíðunni, undir janúar 2008.

Hvaða hundaeigandi hefur ekki lent í þessu?

Myndbönd 1 Comment

Maður hefur reyndar upplifað eitt og annað í samlífinu með hundinum sínum … en aldrei þetta!

Skák og mát

Almennt 4 Comments

Í mínum eigin nördaskap set ég hér inn stoltur skák sem ég telfdi í kvöld - í nánast tapaðri stöðu kom ég auga á sigurleikinn fyrir mig (hvítt) :)

Skák og mát í þrem

Gleðileg Jól!

Óflokkað No Comments

… og farsæld á komandi ári!

Hef verið ótrúlega latur við að skrifa hérna inn síðustu mánuði og enn latari við að taka myndir en vonandi verður þar einhver breyting á með nýju ári :)

Ellingsenspúnninn þrælvirkar

Almennt No Comments

Það er ekki á hverjum degi sem maður stundar laxveiði í Fljótánni með Ellingsenspúni. Myndin hér að neðan er tekin af því þegar ég og Mattijs tókum þátt í því að draga fyrir helstu hyli í Fljótánni í von um að góma hrygnur í klak.

Samtals gómuðum við 2 hrygnur og 4 hænga, allt frekar smávaxið, í kring um 5 pund. Hinsvegar gómuðum við líka heilan helling af vænum 2-4 punda bleikjum sem við reyndar slepptum aftur.

img_2199.jpg

Á ferðalagi um Norðurland

Almennt 1 Comment

Síðustu viku var hjá mér í heimsókn félagi minn Mattijs Eggink frá Hollandi og ferðuðumst við töluvert hér um Norðurland. Skoðuðum Ásbyrgi, Dettifoss og Mývatn. Fórum á fjórhjól frá Draflastöðum. Kíktum á Hjalteyri. Dvöldum í 3 daga vestur í Fljótum og enduðum reisuna á því á skreppa á skak út frá Ólafsfirði. Vikan var hreint út sagt stórkostleg, en mikið vorum við þreyttir á föstudeginum, því planið var svo stíft að varla gafst tími til að sofa milli dagskrárliða!

Myndir frá ferðalaginu hafa verið settar á myndasíðuna.

Mynd 1: Stoltur með einn golþorskinn sem veiddist fyrir utan Hvanndali

Mynd 2: Mattijs stillir sér upp fyrir framan Dettifoss

Rjúpan

Almennt No Comments

“Rjúpan sem einnig er nefnd fjallrjúpa er eini villti hænsnfuglinn hérlendis. Hún er frekar þéttvaxin með stutta og breiða vængi. Yfir varptímann er búningurinn brúnleitur. Karrinn verður grádílóttur en kvenfuglinn guldílóttur. Karrinn fær rauðan kamb fyrir ofan augun. Kvenfuglinn, rjúpan er hvít á kviðnum allt árið, en einkenni beggja er að fætur eru fiðraðir. Stélfjaðrir eru svartar. Vetrarbúningur beggja er hvítur. Goggurinn er stuttur, sterklegur og svartur, fætur fiðraðir með dökkum klóm. Augu dökkleit.

  • Latína - Lagopus utus
  • Danska - Fjeldrype
  • Norska - Fjellrype
  • Sænska - Fjállripa
  • Enska - br: Ptarmigan am: Rock Ptarmigan
  • Þýska - Alpenschneehuhn
  • Franska - Lagopéde alpin
  • Spænska - Perdiz nival

Þyngd: 386 - 652gr
Hljóð: Karrarnir gefa frá sér einstakt rop. Hljómar eins og margir hraðir rámir smellir.

Veiðitími samkv lögum: 15.10 - 22.12
Veiðitími samkv reglug: 1. nóvember til 30. nóvember - [frá fimmtudag til og með sunnudag].
Einnig sölubann á veiðibráð og rjúpnaafurðum. ” (Tekið af : veidimadur.is)

img_8990.JPG

Ekki það að ég sé orðinn eitthvað agalega spenntur fyrir rjúpnaveiðunum í vetur. Rakst bara á þessa ógurlega feitu rjúpu á Minni-Grindli um þar síðustu helgi, þar sem hún ósköp gæf bókstaflega rúllaði þarna um garðinum. Í vetur ætla ég að veiða 10 rjúpur og ekki eitt stykki meir þó svo að færi gefist - þykir vænt um þessa fugla og ef þeir væru barasta ekki svona ómisssandi við jólahaldið væri ég ekkert á móti því að fuglinn væri friðaður allt árið um kring.

« Previous Entries